2 Chronicles 36:14 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Þá sýndu og allir höfðingjar prestanna og lýðsins mikla ótrúmennsku með því að drýgja allar sömu svívirðingarnar og heiðingjarnir, og saurguðu svo musteri Drottins, það er hann hafði helgað í Jerúsalem.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Allir leiðtogar Júda, prestarnir og almenningur, urðu sífellt svikulli. Þeir líktu eftir viðbjóðslegum siðum annarra þjóða og saurguðu hús Drottins sem Drottinn hafði helgað í Jerúsalem.