2 Chronicles 8:14 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Og eftir fyrirmælum Davíðs föður síns setti hann prestaflokkana til þjónustu þeirra og levítana til starfs þeirra, að syngja lofsöngva og vera prestunum til aðstoðar, svo sem við átti á degi hverjum, og hliðverðina setti hann við sérhvert hlið, eftir flokkaskipun þeirra, því að svo hafði guðsmaðurinn Davíð um boðið.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Í samræmi við ákvörðun Davíðs, föður síns, setti hann þjónustuflokka prestanna til þjónustu og Levítana til starfa að flytja lofgjörð og þjóna ásamt prestunum eftir því sem þurfti hvern dag. Eins setti hann hliðverðina við hvert hlið samkvæmt þjónustuflokkum þeirra því að þannig hafði guðsmaðurinn Davíð mælt fyrir.