2 Chronicles 9:1 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Þá er drottningin í Saba spurði orðstír Salómons, kom hún til Jerúsalem með mjög miklu föruneyti og með úlfalda, klyfjaða kryddjurtum og afar miklu gulli og gimsteinum, til þess að reyna Salómon með gátum. Og er hún kom til Salómons, bar hún upp fyrir honum allt, sem henni bjó í brjósti.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Drottningin af Saba heyrði það orð sem fór af Salómon og kom til þess að reyna hann með gátum í Jerúsalem. Hún kom ásamt mjög miklu fylgdarliði og hafði úlfalda klyfjaða balsami, afar miklu gulli og dýrindis steinum. Hún gekk fyrir Salómon og lagði fyrir hann allt sem henni lá á hjarta.