2 Kings 17:26 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Þá sögðu menn svo við Assýríukonung: “Þjóðirnar, er þú fluttir burt og lést setjast að í borgum Samaríu, vita eigi, hver dýrkun landsguðnum ber. Fyrir því hefir hann sent ljón meðal þeirra, og sjá, þau deyða þá, af því að þeir vita ekki, hvað landsguðnum ber.”
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Menn sneru sér því til Assýríukonungs og sögðu: „Þjóðirnar, sem þú fluttir í útlegð og lést setjast að í borgum Samaríu, þekkja ekki helgisiði landsguðsins. Nú hefur hann sent til þeirra ljón sem drepa þær af því að þær þekkja ekki helgisiði landsguðsins.“