2 Kings 18:14 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Þá sendi Hiskía Júdakonungur boð til Assýríukonungs til Lakís og lét segja honum: “Ég hefi syndgað, far aftur burt frá mér. Mun ég greiða þér slíkt gjald, er þú á mig leggur.” Þá lagði Assýríukonungur þrjú hundruð talentur silfurs og þrjátíu talentur gulls á Hiskía Júdakonung.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
En Hiskía Júdakonungur sendi þessi boð til Assýríukonungs í Lakís: „Ég hef brotið af mér. Far aftur burt frá mér og ég skal bera það sem þú leggur á mig.“ Assýríukonungur heimtaði þá þrjú hundruð talentur silfurs og þrjátíu talentur gulls af Hiskía Júdakonungi.