2 Kings 18:17 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Þá sendi Assýríukonungur yfirhershöfðingja sinn, höfuðsmann og marskálk með miklu liði frá Lakís til Jerúsalem á fund Hiskía konungs. Fóru þeir af stað og komu til Jerúsalem og námu staðar hjá vatnsstokknum úr efri tjörninni, sem er við veginn út á bleikivöllinn.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Assýríukonungur sendi því næst yfirhershöfðingja sinn, höfuðsmann og marskálk með mikið herlið frá Lakís til Jerúsalem á fund Hiskía konungs. Þeir héldu af stað, komu til borgarinnar og tóku sér stöðu við vatnsleiðsluna úr efri tjörninni við veginn til þvottavallarins.