2 Kings 23:24 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Enn fremur eyddi Jósía þeim mönnum, er höfðu þjónustuanda, svo og spásagnamönnum, húsgoðum og skurðgoðum og öllum þeim viðurstyggðum, er sáust í Júda og Jerúsalem, til þess að fullnægja fyrirmælum lögmálsins, þeim er rituð voru í bókinni, sem Hilkía prestur hafði fundið í musteri Drottins.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Jósía lét einnig tortíma öllum miðlum, spásagnamönnum, húsguðum og skurðgoðum og allri þeirri viðurstyggð sem finna mátti í Júda og Jerúsalem. Þannig fullnægði hann kröfum lögmálsins sem skráðar voru í bókinni sem Hilkía yfirprestur fann í musteri Drottins.