2 Kings 23:35 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Jójakím greiddi Faraó silfur og gull. Hann varð að leggja skatt á landið til þess að geta goldið fé það, er Faraó krafðist. Heimti hann silfrið og gullið saman af landslýðnum, eftir því sem jafnað hafði verið niður á hvern og einn, til þess að geta greitt Faraó Nekó það.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Jójakím greiddi faraó silfrið og gullið en hann varð að leggja skatt á landið til þess að geta greitt faraó það sem hann krafðist. Hann lét innheimta silfrið og gullið af fólkinu í landinu, í samræmi við það sem lagt hafði verið á hvern um sig, og greiddi það síðan Nekó faraó.