2 Kings 23:4 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Síðan bauð konungur Hilkía æðsta presti og óæðri prestunum og dyravörðunum að taka burt úr aðalhúsi musteris Drottins öll áhöld, þau er gjörð höfðu verið handa Baal og Aséru og öllum himinsins her. Og hann lét brenna þau fyrir utan Jerúsalem á Kídronvöllum, og askan af þeim var flutt til Betel.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Þá skipaði konungurinn Hilkía yfirpresti, prestunum, sem gengu honum næstir að tign, og þeim sem gættu hliðanna að fjarlægja úr musteri Drottins öll þau áhöld sem gerð höfðu verið handa Baal, Aséru og öllum himinsins her og brenna þau utan við Jerúsalem í hlíðum Kedrondals. Öskuna lét hann flytja til Betel.