2 Kings 23:8 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Hann lét alla presta koma frá borgunum í Júda og afhelgaði fórnarhæðirnar, þar sem prestarnir höfðu fórnað, frá Geba til Beerseba. Hann braut og niður hæðir hafurlíkneskjanna, sem stóðu úti fyrir hliði Jósúa borgarstjóra, en það er á vinstri hönd, þá er inn er gengið um borgarhliðið.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Jósía lét alla presta koma frá borgum Júda og afhelgaði fórnarhæðirnar þar sem prestarnir höfðu fært reykelsisfórnir allt frá Geba til Beerseba. Hann lét rífa niður helgidómana við hliðin sem voru á vinstri hönd þeim sem gengu inn um borgarhlið Jósúa, hershöfðingja borgarinnar.