2 Kings 25:23 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Og er allir hershöfðingjarnir og menn þeirra fréttu, að Babelkonungur hefði skipað Gedalja landstjóra, fóru þeir til Mispa á fund Gedalja, þeir Ísmael Netanjason, Jóhanan Kareason, Seraja Tanhúmetsson frá Netófa og Jaasanja frá Maaka ásamt mönnum sínum.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Þegar allir liðsforingjarnir og menn þeirra fréttu að Babýloníukonungur hefði skipað Gedalía landstjóra komu þeir til hans í Mispa. Það voru þeir Ísmael Netanjason, Jóhanan Kareason, Seraja Tanhúmetsson frá Netófa og Jaasanja frá Maaka og menn þeirra.