2 Kings 4:27 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
En er hún kom á fjallið til guðsmannsins, tók hún um fætur honum. Þá gekk Gehasí að og vildi hrinda henni frá. En guðsmaðurinn mælti: “Láttu hana vera, því að hún er harmþrungin mjög, og Drottinn hefir leynt mig því og eigi látið mig vita það.”
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Þegar hún kom til guðsmannsins á fjallinu greip hún um fætur hans. Gehasí kom þá og ætlaði að ýta henni frá en guðsmaðurinn sagði: „Láttu hana vera því að hún er örvæntingarfull. En Drottinn hefur leynt orsök þess fyrir mér og ekki sagt mér frá því.“