2 Kings 5:11 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Þá varð Naaman reiður og gekk burt og mælti: “Ég hugði þó, að hann mundi koma út til mín og ganga að mér og ákalla nafn Drottins, Guðs síns, veifa hendinni í áttina til helgistaðarins og koma þannig líkþránni burt.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Þessu reiddist Naaman og fór leiðar sinnar. Síðan sagði hann: „Ég hélt að hann kæmi sjálfur út, næmi staðar og ákallaði nafn Drottins, Guðs síns, hreyfði höndina yfir kaunin og læknaði mig þannig af holdsveikinni.