2 Kings 6:32 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
En Elísa sat í húsi sínu, og öldungarnir sátu hjá honum. Sendi þá konungur mann á undan sér, en áður en sendimaðurinn kom til hans, sagði Elísa við öldungana: “Vitið þér, að þessi morðhundur hefir sent hingað til þess að höggva af mér höfuðið? Gætið þess að loka dyrunum, þegar sendimaðurinn kemur, og standið fyrir hurðinni, svo að hann komist ekki inn. Heyrist ekki þegar fótatak húsbónda hans á eftir honum?”
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Elísa dvaldist í húsi sínu og öldungarnir sátu þar hjá honum þegar konungur sendi mann til hans. En áður en sendiboðinn var kominn sagði Elísa við öldungana: „Gerið þið ykkur grein fyrir að þessi morðingi hefur sent mann til þess að höggva af mér höfuðið? Gætið þess að loka dyrunum þegar sendiboðinn kemur og standið fyrir hurðinni svo að hann komist ekki inn. Ég heyri fótatak húsbónda hans á eftir honum.“