2 Kings 7:12 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Þá reis konungur upp um nóttina og sagði við menn sína: “Ég skal segja yður, hvað Sýrlendingar ætla nú að gjöra oss. Þeir vita, að vér sveltum. Hafa þeir því farið burt úr herbúðunum til þess að fela sig úti á mörkinni, með því að þeir hugsa: Þegar þeir fara út úr borginni, skulum vér taka þá höndum lifandi og brjótast inn í borgina.”
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Konungur fór á fætur um nóttina og sagði við hirðmenn sína: „Ég skal segja ykkur hvað Aramearnir ætla að gera okkur. Þeir vita að við sveltum, þess vegna hafa þeir farið út úr herbúðunum, falið sig úti á víðavangi og hugsa með sér: Þegar Ísraelsmenn fara út úr borginni grípum við þá lifandi. Eftir það getum við farið inn í borgina.“