2 Kings 7:8 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
En er hinir líkþráu menn komu út að herbúðunum, gengu þeir inn í eitt tjaldið, átu og drukku, höfðu þaðan silfur, gull og klæði og gengu burt og fólu það. Síðan komu þeir aftur, gengu inn í annað tjald, höfðu og nokkuð þaðan, gengu burt og fólu.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Þegar holdsveiku mennirnir komu að útjaðri herbúðanna fóru þeir inn í eitt tjaldið, fengu sér þar að eta og drekka og höfðu að því búnu á brott með sér þaðan silfur, gull og fatnað og földu. Síðan sneru þeir aftur og fóru inn í annað tjald, tóku það sem þeir fundu, höfðu á brott með sér og földu.