2 Kings 8:9 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Hasael fór þá til fundar við hann og tók með sér gjöf nokkra, alls konar gersemar úr Damaskus, klyfjar á fjörutíu úlfalda. Og er hann kom, gekk hann fyrir hann og mælti: “Sonur þinn, Benhadad Sýrlandskonungur, sendir mig til þín og lætur spyrja: ‘Mun ég aftur heill verða af sjúkleik þessum?’”
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Hasael fór til móts við Elísa og hafði með sér að gjöf allt það besta sem völ var á í Damaskus. Voru það klyfjar á fjörutíu úlfalda. Hann kom til Elísa, gekk fyrir hann og sagði: „Sonur þinn, Benhadad Aramskonungur, sendi mig til að spyrja þig hvort hann muni ná sér af sjúkdómi sínum.“