2 Kings 9:15 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
En síðan hafði Jóram konungur snúið aftur til þess að láta græða sár sín í Jesreel, þau er Sýrlendingar höfðu veitt honum, þá er hann barðist við Hasael Sýrlandskonung. Jehú mælti: “Ef þér viljið fylgja mér, þá látið engan undan komast út úr borginni til þess að segja tíðindin í Jesreel.”
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Jóram konungur hafði snúið heim til Jesreel þar sem hann ætlaði að láta sár sín gróa sem Aramearnir höfðu veitt honum þegar hann barðist gegn Hasael, konungi Arams. „Ef þið eruð mér sammála,“ sagði Jehú, „sjáið þá til þess að enginn sleppi út úr borginni til að segja frá þessu í Jesreel.“