2 Samuel 11:25 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Þá sagði Davíð við sendimanninn: “Svo skalt þú segja Jóab: ‘Láttu þetta ekki á þig fá, því að sverðið verður ýmist þessum eða hinum að bana. Sæk þú vasklega að borginni og brjót hana’ - og teldu þannig hug í hann.”
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Þá sagði Davíð við sendiboðann: „Berðu Jóab eftirfarandi skilaboð: Láttu þetta ekki á þig fá því að sverðið bítur til bana hvern sem vera skal. En hertu árásina á borgina, leggðu hana í rúst, og teldu þannig kjark í hann.“