2 Samuel 13:5 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Þá sagði Jónadab við hann: “Leggst þú í rekkju og lát sem þú sért sjúkur, og þegar faðir þinn kemur til þess að vitja um þig, þá skaltu segja við hann: ‘Lát Tamar systur mína koma og gefa mér að eta. Ef hún byggi til matinn fyrir augum mér, svo að ég gæti horft á, þá mundi ég eta úr hendi hennar.’”
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Þá sagði Jónadab við hann: „Leggstu í rúmið og láttu sem þú sért veikur. Og þegar faðir þinn kemur til þess að vitja um þig skaltu segja við hann: Láttu Tamar, systur mína, koma og gefa mér að eta. Hún á að búa til matinn fyrir augum mínum og síðan et ég úr hendi hennar.“