2 Samuel 14:19 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Þá mælti konungur: “Er ekki Jóab í ráðum með þér um allt þetta?” Konan svaraði og sagði: “Svo sannarlega sem þú lifir, minn herra konungur, er eigi unnt að fara utan um nokkuð af því, sem minn herra konugurinn hefir sagt, hvorki til hægri né vinstri handar. Það var einmitt þjónn þinn Jóab, sem bauð mér þetta, og hann lagði þernu þinni öll þessi orð í munn.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Þá spurði konungur: „Er hönd Jóabs með í þessum leik?“ Konan svaraði og sagði: „Svo sannarlega sem þú lifir, herra minn og konungur, þá er ekki hægt að fara í kringum neitt sem herra minn, konungurinn, hefur sagt. Já, það var Jóab, þjónn þinn, sem gaf fyrirmælin og lagði mér, ambátt þinni, öll þessi orð í munn.