2 Samuel 14:7 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Sjá, þá reis öll ættin upp á móti ambátt þinni og sagði: ‘Sel fram bróðurmorðingjann, og munum vér drepa hann fyrir líf bróður hans, er hann myrti, og tortíma erfingjanum um leið.’ Og þann veg vilja þeir slökkva þann neista, sem mér er eftir skilinn, svo að maðurinn minn láti hvorki eftir sig nafn né niðja á jörðinni.”
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Nú hefur öll ættin snúist gegn ambátt þinni og segir: Framseldu bróðurmorðingjann svo að við getum tekið hann af lífi og hefnt bróður hans sem hann drap. Þannig getum við rutt erfingjanum úr vegi. Þeir ætla að kæfa þá glóð sem var skilin eftir handa mér og þeir ætla hvorki að skilja eiginmanni mínum eftir nafn né niðja á jörðinni.“