2 Samuel 15:34 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
En ef þú fer aftur til borgarinnar og segir við Absalon: ‘Þér vil ég þjóna, konungur. Föður þínum hefi ég áður þjónað, en nú vil ég þjóna þér,’ - þá getur þú ónýtt ráð Akítófels fyrir mig.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
En þú getur kollvarpað ráðabruggi Akítófels ef þú ferð inn í borgina og segir við Absalon: Konungur, ég vil gerast þjónn þinn. Áður var ég þjónn föður þíns en nú vil ég gerast þjónn þinn.