2 Samuel 18:28 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Akímaas bar þá að og mælti hann við konung: “Sit heill!” og laut á ásjónu sína til jarðar fyrir konungi og mælti: “Lofaður sé Drottinn, Guð þinn, sem framselt hefir þá menn, er upplyftu hendi sinni gegn mínum herra, konunginum.”
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Akímaas hrópaði til konungs: „Heill sért þú,“ og varpaði sér fram á ásjónu sína frammi fyrir konungi og sagði: „Lofaður sé Drottinn, Guð þinn. Hann hefur selt þér þá menn í hendur sem hafa lyft hendi sinni gegn þér, herra minn og konungur.“