2 Samuel 2:32 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
En Asahel tóku þeir og jörðuðu hann hjá föður hans í Betlehem. Því næst hélt Jóab og menn hans áfram ferðinni alla nóttina og komu til Hebron í dögun.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Þeir tóku Asael með sér og lögðu hann í gröf föður síns í Betlehem. Síðan gengu Jóab og menn hans alla nóttina og komu til Hebron í birtingu.