2 Samuel 20:10 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
En Amasa hafði ekki tekið eftir sverðinu, er Jóab hafði í vinstri hendi sér. Lagði Jóab því í kvið honum, svo að út féllu iðrin. Eigi lagði hann til hans aftur, því að hann var þegar dauður. Jóab og Abísaí, bróðir hans, fóru eftir Seba Bíkrísyni.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
En Amasa tók ekki eftir sverðinu, sem Jóab hafði í vinstri hendi, og lagði Jóab því í kvið honum svo að innyflin lágu úti. Jóab þurfti ekki að leggja til hans aftur því að hann var þegar dáinn. Jóab og Abísaí, bróðir hans, héldu síðan áfram að veita Seba Bíkrísyni eftirför.