2 Samuel 20:3 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Þegar Davíð kom til hallar sinnar í Jerúsalem, lét konungur taka hjákonurnar tíu, er hann hafði skilið eftir til þess að gæta hallarinnar, og setti þær í varðhald og ól þar önn fyrir þeim, en eigi hafði hann samfarir við þær. Lifðu þær þannig innibyrgðar til dauðadags sem ekkjur lifandi manna.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Þegar Davíð kom heim til sín í Jerúsalem lét konungur taka hjákonurnar tíu, sem hann hafði skilið eftir til að gæta húss síns, og setja þær í varðhald. Hann sá fyrir þeim en gekk ekki framar inn til þeirra. Þannig lifðu þær sem ekkjur innilokaðar allt til dauðadags.