2 Samuel 20:8 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
En er þeir voru hjá stóra steininum, sem er hjá Gíbeon, mætti Amasa þeim. Jóab var klæddur brynjukufli sínum og gyrtur sverði utan yfir hann, og voru sverðsslíðrin fest við lend honum. Hljóp sverðið úr slíðrunum og féll til jarðar.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Þegar þeir komu að stóra steininum í Gíbeon var Amasa kominn þangað á undan þeim. Jóab var búinn herklæðum, sverð sitt hafði hann við lend sér í slíðri sem fest var við beltið. Þegar hann gekk fram hrökk sverðið úr slíðrinu.