2 Samuel 24:13 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Þá gekk Gað til Davíðs, sagði honum frá þessu og mælti til hans: “Hvað kýst þú, að hungur komi í þrjú ár yfir land þitt, eða að þú verðir að flýja í þrjá mánuði fyrir óvinum þínum og sverðið elti þig, eða drepsótt geisi þrjá daga í landi þínu? Hugsaðu þig nú um, og sjá til, hverju ég á að svara þeim, sem sendi mig.”
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Því næst gekk Gað fyrir Davíð, tilkynnti honum þetta og spurði: „Hvað viltu kalla yfir þig? Viltu hungursneyð í landinu í þrjú ár, viltu vera þrjá mánuði á flótta undan óvinum þínum, sem ofsækja þig, eða viltu að drepsótt geisi þrjá daga í landi þínu? Íhugaðu nú vel hvaða svar ég á að færa þeim sem sendi mig.“