2 Samuel 4:12 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Síðan bauð Davíð sveinum sínum að drepa þá. Þeir gjörðu svo og hjuggu af þeim hendur og fætur og hengdu þá upp hjá tjörninni í Hebron. En höfuð Ísbósets tóku þeir og jörðuðu það í gröf Abners í Hebron.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Davíð gaf mönnum sínum því næst skipun um að vega þá og þeir hjuggu af þeim hendur og fætur og festu upp við tjörnina í Hebron. En höfuð Ísbósets tóku þeir og lögðu í gröf Abners í Hebron.