2 Samuel 5:20 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Þá fór Davíð til Baal Perasím. Og Davíð vann þar sigur á þeim og sagði: “Drottinn hefir skolað burt óvinum mínum fyrir mér, eins og þegar vatn ryður sér rás.” Fyrir því var sá staður nefndur Baal Perasím.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Þá fór Davíð til Baal Perasím, sigraði þá þar og sagði: „Drottinn hefur rofið fylkingar fjandmanna minna frammi fyrir mér líkt og vatn sem brýtur sér leið.“ Þess vegna er þessi staður nefndur Baal Perasím, það er Herra rofsins.