2 Samuel 8:10 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
þá sendi Tóú Hadóram son sinn á fund Davíðs konungs til þess að heilsa á hann og árna honum heilla, er hann hafði barist við Hadadeser og unnið sigur á honum - því að Tóú átti í ófriði við Hadadeser -, og hafði hann með sér gripi af silfri, gulli og eiri.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
sendi hann Jóram, son sinn, til Davíðs konungs með gripi úr gulli, silfri og eir. Hann lét flytja honum kveðju og árna honum heilla vegna þess að hann hafði barist við Hadadeser og sigrað hann en Tói hafði átt í stríði við Hadadeser.