Daniel 1:10 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
En hirðstjórinn sagði við Daníel: “Ég er hræddur um að minn herra konungurinn, sem tiltekið hefir mat yðar og drykk, sjái yður fölari í bragði en aðra sveina á yðar aldri, og verðið þér svo þess valdandi, að ég fyrirgjöri lífi mínu við konunginn.”
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
og Aspenas sagði við Daníel: „Nú hefur herra minn, konungurinn, ákveðið hvað þið skuluð eta og drekka. En smeykur er ég um að konungur kunni að gera mig höfðinu styttri ef þið lítið verr út en félagar ykkar.“