Daniel 11:6 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Og að nokkrum árum liðnum munu þeir mægjast hvor við annan. Þá mun dóttir konungsins suður frá koma til konungsins norður frá til þess að koma á sáttum. En sú hjálp mun að engu haldi koma, stuðningur hans mun og eigi standa. Og hún mun framseld verða, hún og þeir, sem hana höfðu flutt þangað, og faðir hennar og sá, er gekk að eiga hana, á sínum tíma.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Nokkrum árum síðar munu þeir mægjast. Dóttir konungs suðursins mun koma til konungs norðursins til að staðfesta þann sáttmála en mætti sínum mun hún ekki halda og máttur hans mun einnig dvína. Hún verður framseld með fylgdarliði sínu, föður og eiginmanni. Á þessum tíma