Daniel 12:1 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
En á þeim tíma mun Míkael, hinn mikli verndarengill, sá er verndar landa þína, fram ganga. Og það skal verða svo mikil hörmungatíð, að slík mun aldrei verið hafa, frá því er menn urðu fyrst til og allt til þess tíma. Á þeim tíma mun þjóð þín frelsuð verða, allir þeir sem skráðir finnast í bókinni.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Mikael, leiðtoginn mikli, sem verndar syni þjóðar þinnar, mun þá birtast. Verða þá slíkir hörmungatímar að eigi verður við jafnað frá því að þjóðin varð til. Á þeim tíma mun þjóð þín bjargast, allir þeir sem skráðir eru í bókinni.