Daniel 2:45 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
þar sem þú sást að steinn nokkur losnaði úr fjallinu, án þess að nokkur mannshönd kæmi við hann, og mölvaði járnið, eirinn, leirinn, silfrið og gullið. Mikill Guð hefir kunngjört konunginum hvað hér eftir muni verða. Draumurinn er sannur og þýðing hans áreiðanleg.”
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Það er steinninn sem þú sást losna úr fjallinu, án þess að nokkur mannshönd kæmi nærri, og mölvaði jafnt járn sem eir, leir, silfur og gull. Mikill er sá Guð sem nú hefur birt konungi það sem í vændum er. Draumurinn er sannur og ráðning hans ótvíræð.“