Daniel 3:15 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Ef þér nú eruð viðbúnir, jafnskjótt og þér heyrið hljóð hornanna, pípnanna, gígjanna, harpnanna, saltaranna, symfónanna og alls konar hljóðfæra, að falla fram og tilbiðja líkneski það, er ég hefi gjöra látið, þá nær það ekki lengra. En ef þér tilbiðjið það ekki, þá skal yður samstundis verða kastað inn í eldsofn brennandi, og hver er sá guð, er yður megi frelsa úr mínum höndum?”
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Séuð þið til þess reiðubúnir, jafnskjótt og þið heyrið hljóm hornanna, lúðranna, gígjanna, harpnanna, langspilanna, sekkjapípnanna og allra hinna hljóðfæranna, að falla fram og tilbiðja líkneskið sem ég hef látið reisa skal ég láta kyrrt liggja. En ef þið tilbiðjið það ekki verður ykkur tafarlaust varpað inn í glóandi eldsofn. Og hver er þá sá guð sem gæti frelsað ykkur úr höndum mér?“