Daniel 5:21 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Hann var rekinn úr mannafélagi og hjarta hans varð líkt dýrshjarta. Hann átti byggð meðal skógarasna, og honum var gefið gras að eta eins og uxum, og líkami hans vöknaði af dögg himins, þar til er hann kannaðist við, að Guð hinn hæsti ræður yfir konungdómi mannanna og veitir hann hverjum sem hann vill.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Hann var hrakinn burt úr samfélagi manna og hjarta hans varð sem dýrshjarta. Hann deildi kjörum með villiösnum, honum var gefið gras að eta eins og nautpeningi og líkami hans vöknaði af dögg himinsins uns honum varð ljóst að Guð hinn æðsti ræður yfir konungdómi manna og veitir hann þeim sem hann kýs.