Daniel 5:23 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
heldur hefir þú sett þig upp á móti Drottni himnanna og látið færa þér kerin úr húsi hans, og þú og stórmenni þín, konur þínar og hjákonur hafið drukkið vín af þeim. Og þú hefir vegsamað guði úr silfri, gulli, eiri, járni, tré og steini, sem ekki sjá, ekki heyra og ekkert vita, en þann Guð, sem hefir lífsanda þinn í hendi sér og ráð hefir á öllum högum þínum, hann hefir þú ekki tignað.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
heldur hefurðu storkað Drottni himnanna, látið færa þér kerin úr húsi hans og þú og hefðarmenn þínir, konur þínar og hjákonur hafa drukkið vín úr þeim. Þú hefur vegsamað guði úr silfri, gulli, eir, járni, tré og steini sem ekkert sjá, ekkert heyra og ekkert vita. En þann Guð sem ræður lífsanda þínum og öllum vegum þínum, hann hefur þú ekki vegsamað.