Daniel 6:13 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Síðan gengu þeir inn fyrir konung og spurðu hann viðvíkjandi konungsforboðinu: “Hefir þú eigi gefið út það forboð, að hver sá maður, sem í þrjátíu daga gjörir bæn sína til nokkurs guðs eða manns, nema til þín, konungur, honum skuli varpa í ljónagryfju?” Konungur svaraði og sagði: “Það stendur fast, eftir órjúfanlegu lögmáli Meda og Persa.”
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Þeir gengu því næst fyrir konung og færðu konungsbannið í tal við hann: „Hefur þú ekki staðfest það bannákvæði að hverjum þeim sem í þrjátíu daga snýr bænum sínum til nokkurs guðs eða manns annars en þín, konungur, skuli varpað í ljónagryfju?“ Konungur svaraði: „Það er föst ákvörðun eftir órjúfanlegu lögmáli Meda og Persa.“