Daniel 6:5 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Þá leituðu yfirhöfðingjarnir og jarlarnir að finna Daníel eitthvað til saka viðvíkjandi ríkisstjórninni, en gátu enga sök eða ávirðing fundið, því að hann var trúr, svo að ekkert tómlæti né ávirðing fannst hjá honum.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Yfirhöfðingjarnir og héraðshöfðingjarnir tóku því að huga að því hvort finna mætti einhverja misfellu í stjórnsýslu Daníels en ekki tókst þeim að finna neitt sem gæti orðið honum til ámælis eða sakargifta enda var hann svo trúr í starfi að engin ávirðing eða vanræksla varð þar fundin.