Deuteronomy 1:41 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Þá svöruðuð þér og sögðuð við mig: “Vér höfum syndgað gegn Drottni. Vér viljum fara og berjast, eins og Drottinn Guð vor hefir boðið oss.” Og þér gyrtuð yður, hver sínum hervopnum, og tölduð það hægðarleik að leggja upp á fjöllin.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Þið svöruðuð og sögðuð við mig: „Við höfum syndgað gegn Drottni. En nú skulum við fara og berjast eins og Drottinn, Guð okkar, bauð.“ Því næst bjóst hver og einn ykkar herklæðum, tók vopn sín og taldi það hægðarleik að halda upp í fjalllendið.