Deuteronomy 12:21 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Ef sá staður, sem Drottinn Guð þinn velur til þess að láta nafn sitt búa þar, er mjög langt í burtu frá þér, þá skalt þú slátra af nautum þínum og sauðum, sem Drottinn hefir gefið þér, eins og ég hefi fyrir þig lagt, og þú skalt eta það innan borgarhliða þinna eins og þig lystir.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Ef staðurinn, sem Drottinn, Guð þinn, velur með því að setja nafn sitt á hann, er mjög fjarri þér skaltu slátra nautpeningi og sauðfé sem Drottinn hefur gefið þér eins og ég hef boðið og eta eins mikið og þig lystir í heimaborg þinni.