Deuteronomy 21:13 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
og fara úr fötum þeim, er hún var hernumin í. Síðan skal hún dvelja í húsi þínu og gráta föður sinn og móður heilan mánuð. Eftir það mátt þú ganga inn til hennar og samrekkja henni og hún vera kona þín.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
og fara úr fötunum sem hún var í meðan hún var fangi. Hún á að vera heima hjá þér í heilan mánuð og syrgja föður sinn og móður. Eftir það mátt þú ganga inn til hennar og gerast eiginmaður hennar og hún eiginkona þín.