Deuteronomy 25:19 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Fyrir því skalt þú, þegar Drottinn Guð þinn veitir þér hvíld fyrir öllum óvinum þínum allt í kringum þig í landinu, sem Drottinn Guð þinn gefur þér sem arf til eignar, afmá nafn Amalekíta af jörðinni. Gleym því ekki.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Þess vegna skalt þú afmá allt undir himninum sem minnir á Amalek. Gleymdu því ekki þegar Drottinn, Guð þinn, hefur veitt þér frið fyrir öllum óvinum þínum kringum þig í landinu sem Drottinn, Guð þinn, fær þér að erfðahlut og þú tekur til eignar.