Deuteronomy 30:16 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Ef þú hlýðir skipunum Drottins Guðs þíns, þeim er ég legg fyrir þig í dag, að elska Drottin Guð þinn, ganga á hans vegum og varðveita skipanir hans, lög og ákvæði, þá munt þú lifa og margfaldast, og Drottinn Guð þinn mun blessa þig í landi því, er þú heldur nú inn í til þess að taka það til eignar.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Ef þú hlýðir boðum Drottins, sem ég set þér í dag, með því að elska Drottin, Guð þinn, ganga á vegum hans og halda boð hans, ákvæði og lög, munt þú lifa og þér mun fjölga og Drottinn, Guð þinn, mun blessa þig í landinu sem þú heldur nú inn í til að taka það til eignar.