Deuteronomy 33:29 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Heill þér, Ísrael! Hver er sem þú? - lýður, sigursæll fyrir hjálp Drottins! Hann er skjöldur þíns fulltingis, og hann er sverð tignar þinnar. Óvinir þínir munu smjaðra fyrir þér, og þú munt fram bruna á hæðum þeirra.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Heill þér, Ísrael. Hver er sem þú? Þjóðin sem Drottinn frelsaði. Hann er skjöldurinn sem ver þig, sverðið sem veitir þér sigur. Fjandmenn þínir munu skríða fyrir þér, þú munt traðka á baki þeirra.