Esther 1:6 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Þar héngu hvítir baðmullardúkar og purpurabláir, festir með snúrum af býssus og rauðum purpura í silfurhringa og á marmarasúlum, legubekkirnir voru úr gulli og silfri, á gólfi lögðu alabastri, hvítum marmara, perlumóðursteini og svörtum marmara.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Þar var tjaldað drifhvítum og fjólubláum baðmullardúkum sem festir voru í silfurhringi á snúrur úr hvítu líni og purpurarauðu og á marmarasúlur. Þar stóðu hægindi úr gulli og silfri á gólfi lögðu dílóttum granítsteini, marmara, perlumóður og öðrum dýrum steinum.