Esther 2:12 — Compare Translations
2 translations compared side by side
Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Og er röðin kom að hverri stúlku um sig, að hún skyldi ganga inn fyrir Ahasverus konung, eftir tólf mánaða undirbúningsfrest samkvæmt kvennalögunum - því að svo langur tími gekk til hreinsunarundirbúnings þeirra: sex mánuðir með myrruolíu og sex mánuðir með ilmsmyrslum og öðru því, er til undirbúnings kvenna heyrir -
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Eftir tólf mánaða undirbúning kom að því að hver stúlka um sig skyldi ganga fyrir Xerxes konung. Svo langur tími var áskilinn samkvæmt siðvenju til snyrtingar kvenna, sex mánuðir með myrrukvoðu og aðrir sex með ilmefnum og öðrum fegrunarsmyrslum kvenna.