Esther 2:15 — Compare Translations

2 translations compared side by side

Icelandic 1981 (Biblían (1981))
Þegar nú röðin kom að Ester, dóttur Abíhaíls, föðurbróður Mordekai, er hann hafði tekið sér í dóttur stað, að hún skyldi inn ganga fyrir konung, þá bað hún ekki um neitt, nema það sem Hegaí geldingur konungs, kvennavörðurinn, tiltók. Og Ester fann náð í augum allra þeirra, er hana sáu.
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
Kom nú röðin að Ester, dóttur Abíhaíls, föðurbróður Mordekaí sem hafði tekið hana sér í dóttur stað, og skyldi hún ganga fyrir konung. Bað hún þá ekki um neitt fram yfir það sem geldingur konungs, kvennavörðurinn Hegaí, hafði lagt til. Og Ester vann hylli allra sem sáu hana.